Í gær hittumst við systur heima hjá mér í
Blíðheimum en við vorum búnar að plana systrakvöld. Sigrún og
Eygló fóru að versla á meðan ég var í jóga og svo elduðum
við okkur rosa gott kjúklingasalat, snittubrauð með Sacla
bruchettablöndu og hrísgrjón. Í eftirmat höfðum
við pekan- og karamelluís með jarðaberjum, vínberjum og
súkkulaðisósu. Þetta var rosa gott og svaka kósý hjá okkur
systrum. Mamma kíkti svo smá í heimsókn og tjattaði við okkur í
smá tíma. Svo fórum við systur í Trivial pursuit...Þegar klukkan
var að nálgast hálf tólf þá ákváðum við að stoppa í spilinu en
þá var Sigrún með flesta kökur, svo ég og svo Eygló. Held að
ég og Eygló viljum fá rematch einhvern tímann fljótlega,
hehe 
Annars er ég bara ein heima þessa dagana, Siggi
og Óskar eru báðir í Finnlandi í landsliðsferð. Siggi er að spila
með A-landsliðinu en Óskar fór út sem
aðstoðarmaður/aðstoðarþjálfari með U-16 ára liðinu. Hann var
reyndar nýkominn heim frá Ítalíu þar sem hann fór út
með U-18 ára landsliðinu og kom heim í einn dag áður en hann
fór til Finnlands.
Siggi er núna líklegast að hita upp fyrir
leikinn gegn Noregi. Það hefur ekki gengið nógu vel hjá þeim en
þeir eru búnir að tapa fyrstu tveimur leikjunum á móti Finnlandi og
Svíþjóð. En hann kemur nú heim á sunnudaginn svo ég er nú
ekki lengi ein
Eina góða við að hann Siggi minn er ekki heima er
að þá er meira pláss í rúminu...ég er nefnilega farin að taka
aðeins meira pláss en vanalega 
Svo er verslunarmannahelgin að ganga í garð, en
ég verð bara heima þetta árið. Förum reyndar í eins árs afmæli til
Guðnýjar Eddu á mánudaginn en Steffý og Gísli ætla að halda smá
afmælisveislu fyrir skvísuna upp í sumarbústað...það verður
örugglega gaman.
En bið bara að heilsa í bili - hafið það gott á
helginni
Alda kalda 